Lilja til Haiti.
Lilja Steingrímsdóttir hjúkrunarfræðingur, kennari og formaður Art of Living á Íslandi fór í dag (7.febrúar) til hjálparstarfa á Haiti á vegum alþjóða Rauða Krossins. Mikill skortur hefur verið á frönskumælandi hjúkrunarfræðingum vegna jarðskjálftans þar í landi. Lilja, sem hefur starfað sem hjúkrunarfræðingur víða um heim á vegum Rauða krossins, verður á Haiti næstu vikur og mun einnig taka þátt í starfi Art of Living þar, en samtökin eru einnig með öflugt hjálparstarf á Haiti. Við óskum Lilju góðs gengis á Haiti.
Á meðan Lilja vinnur erfið verk á Haiti mun Sunil frá Indlandi og Berglind Þórðardóttir, sjá um námskeið hér og "öndunar" kvöldin í Rósinni á mánudögum.
Öndunarvinir!
Við hittumst einu sinni í viku og gerum öndunaræfingar saman, Sudarshan Kriya í Rósinni, Bolholti 4, á
mánudagskvöldum kl. 19:30
Námskeið 1 - (fyrsti hluti)
Yoga- Öndunartækni- Hugleiðsla
Allir vilja ná betri árangri, vera við góða heilsu, öðlast hugarró og vera hamingjusamir. En hvað kemur í veg fyrir þetta? STRESS!
Hugsanir okkar er á endalausu flakki milli fortíðar og framtíðar. Við höfum áhyggjur af einhverju sem sem koma skal eða erum að velta okkur uppúr einhverju sem er löngu liðið. Þetta framkallar streitu í líkamanum. Ef við erum í núinu og náum að kyrra hugan tekst okkur mun betur að takast á við lífið. Einbeiting eykst og lífsgæði aukast. Hljómar vel! En hvernig förum við að því að kyrra hugan?
Fæstir vita að líkaminn býr yfir einstöku “tæki” til að losna við stress. Öndunina. Já flest okkar nýta einungis lítinn hluta af öndunni og anda bara af gömlum vana og gera sér ekki grein fyrir mætti markvissrar öndunar)
Á námskeiðinu lærir þú sérstaka öndunartækni sem kallast Sudarshan Kriya, við hugleiðum og gerum léttar yoga æfingar.
Námskeiðið getur gagnast þér á eftirfarandi hátt:
- Þú lærir æfingar sem að stuðla að betra jafnvægi á milli líkama, sálar og huga.
- Þú lærir tækni til þess að losna við neikvæðar hugsanir og tilfinningar
- Minnkar stress og kvíða
- Bætir heilsu og eykur orku
- Bætir einbeitingu, sjálfsöruggi
- Þú öðlast betri sjálfsþekkinu
Næsta námskeið ;18. - 23. Febrúar 2010
Sjá einnig www.islandi.webs.com
Hvert námskeið skiptist í: fjögur kvöld; fimmtudag, föstudag, mánudag, þriðjudag, frá kl: 19.00-22.00 og laugardag og sunnudag frá kl. 9.00-14.00.
Verð fyrir námskeið er kr. 29.000.-
ellilífeyrisþegar, atvinnulausir, öryrkjar og námsmenn kr. 21.000.-
Innritun:
Lilja Steingrímsdóttir hjúkrunarfræðingur, sími: 692 8302 eða
Berglind Þórðardóttir, sími: 895 0123.
eða á artofliving@gmail.com
Óháðar rannsóknir hafa sýnt að öndunartækni Art of Living hefur reynst hjálpleg við þunglyndi og kvíða og til að koma á eðlilegu svefnmynstri.
Önnur námskeið í Art of Living 3
Alþjóðleg námskeið með Sri Sri Ravi Shankar
2010 Mars
30 mars-4 april Bali
Sri Sri Yoga Námskeið fyrir Jóga kennara
Þessi námskeið eru fyrir þá sem vilja verða Sri Sri Yoga kennarar, hafðu samband og fáðu nánari upplýsingar; Lilja Steingrímsdóttir hjúkrunarfræðingur, sími: 692 8302
Fleiri upplýsingar á þessum heimasíðum; www.artofliving.org. Á heimasíðunni er hægt að fræðast um þessi alþjóðlegu samtök og starf þeirra í yfir 140 löndum. Art of Living eru ein stærstu mannúðarsamtök í heiminum og starf þeirra margvíslegt, t.d. á átakasvæðum o.fl.
Sjá einnig heimasíður systursamtaka á norðurlöndum; artofliving.dk artofliving.no og artofliving.se
Franski kvikmynda framleiðandinn og leikstjórinn Alexandre Bouillon hefur nýlokið gerð kvikmyndar, sem er 53 mínútur að lengd, um æfi þess merka manns Sri Sri Ravi Shankar. Heimildarmynd þessi segir sögu manns, sem hefur alla tíð unnið að hjálparstörfum og að skapa betri heim með margvíslegri fræðslu, með það m.a. að markmiði að stuðla að heimi án ofbeldis og streitu. Sri Sri Ravi Shankar er stofnandi samtakanna The Art of Living Foundation, sem eru almannasamtök starfandi í meir en 140 löndum. Hann er reglulega boðinn til fyrirlestrahalds og ráðgjafastarfa bæði hjá Sameinuðu þjóðunum og á Evrópu þinginu. Draumur hans um “heimsfjölskylduna” ("A One World Family"), hefur hvatt til dáða og breytt lífi miljóna manna um allan heim. Á vegum Art of Living Foundation eru í dag starfandi háskólar og þróunar aðstoð víða, sérstaklega á Indlandi og í þróunarlöndum. Fræðslusetur samtakanna í Evrópu er í Bad Antogast í Þýskalandi og koma þangað fjöldi fólks árlega til að fræðast, bæði á ráðstefnum og námskeiðum.
Heimildarmyndin fjallar um sögu þessa einstaka manns Sri Sri Ravi Shankar. Myndin segir frá dögum í lífi hans, dögum þar sem hann ver tíma sínum ýmist við heimsókn og hjálp í verstu fátækrahverfum, eða tekur á móti þjóðhöfðingjum. Á lífsleið sinni hefur hann unnið að bættum réttindum og heilsu barna og kvenna, auk þess að vinna að úrbótum fyrir fanga og starfsmanna fangelsa víða um heim. Þetta er maður, sem hefur unnið að úrbótum, sáttum og friði á flestum ófriðarsvæðum heimsins. Í raun má segja að hann sé sannur arftaki Mahatma Gandhi; Sri Sri Ravi Shankar er til staðar þar sem þörf er á hjálp og friði. Hægt er að fræðast um myndina á vefsíðunni www.srisrimovie.com.
Greinar:
"Kvinder slipper angst, stress og depression på 40 dage" - i Art of Living, 03 2009
"Vold er smerte" i Psykologi, november 2008
"Træk vejret og bliv stressfri" i Psykologi, juni 2006
"Indisk guru styrker den mentale kvalitet" i Børsen, 6. januar 2006
Med billeder - Læsevenlig, uden billeder
Interview med Art of Livings Breathe SMART lærer Jakob Lund i Go' morgen Danmark:


